GeoSilica Iceland
GeoSilica framleiðir náttúruleg bætiefni til daglegrar notkunar fyrir endurnýjun líkamans frá toppi til táar.
02/07/2026
GeoSilica Iceland hlýtur styrk frá Lóu – nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina fyrir verkefnið „Jarðhita nano-kísill sem líförvandi efni til gróðurræktar.“ 👏
Styrkurinn gerir okkur kleift að halda áfram að þróa nýjar leiðir til að nýta íslenskar jarðhitaauðlindir á sjálfbæran og verðmætan hátt. Verkefnið snýr að því að rannsaka möguleika jarðhita nano-kísils sem líförvandi efnis í gróðurrækt og byggir á þeirri þekkingu og nýsköpun sem GeoSilica hefur þróað á undanförnum árum.
Við erum sérstaklega þakklát fyrir þann stuðning sem Lóa veitir nýsköpun á landsbyggðinni. Slíkir styrkir skipta sköpum fyrir fyrirtæki eins og okkur þar sem rannsóknir, þróun og verðmætasköpun fara fram í heimabyggð og skapa grundvöll fyrir áframhaldandi uppbyggingu, sérfræðiþekkingu og atvinnu.
Við þökkum Lóu og öllum sem komu að úthlutuninni innilega fyrir traustið!
Meðfylgjandi mynd sýnir Fidu og Sólveigu ásamt ítalska teyminu sem hefur unnið með GeoSilica að þróun verkefnisins.
01/07/2026
Vilt þú tilnefna okkur til Nýsköpunarverðlauna Íslands 2026? 💙
Margir þekkja GeoSilica Iceland sem framleiðanda fæðubótarefna, en það sem að færri vita er að fyrirtækið er fyrst og fremst nýsköpunarfyrirtæki sem hefur þróað nýja tækni til að nýta vannýtta auðlind.🌏
GeoStep® er byltingarkennd framleiðsluaðferð sem nýtir íslenskt jarðhitavatn og umbreytir því sem áður var úrgangur í verðmætt hráefni. Þannig nýtum við íslenska náttúruauðlind á sjálfbæran hátt og búum til verðmæti úr því sem áður var vannýtt.
Ef þið viljið styðja íslenska nýsköpun væri frábært ef þið gæfuð ykkur örfáar sekúndur til að kjósa okkur.
Hlekkur til þess að kjósa er að finna í athugasemdum hér fyrir neðan: 👇
01/07/2026
Hefur þú prófað kísilinn við húðvandamálum?
Viðskiptavinir okkar hafa verið að bera kísilinn á svæðið samhliða inntöku og flestir eru að sjá mun á mjög stuttum tíma 💙
Við mælum með PURE ef að þú ert með exem eða Psoriasis. Við höfum einnig verið í samstarfi við SPOEX (samtök psoriasis og exemsjúklinga) í fjölda ára en meðlimir fá afslátt af PURE.
29/06/2026
Á meðan uppbyggingin á Þeystareykjum er á fullu, hefur verið nóg að gera á Hellisheiði! Fida Abu Libdeh hefur ekki slegið slöku við eins og vanalega og hefur verið önnum kafin við að tæma húsnæðið okkar - konan sem gengur í verkin! Hér má sjá nokkrar myndir frá ferlinu - Það er svolítið súrsætt að kveðja staðinn þar sem allt byrjaði, en á sama tíma ótrúlega spennandi að horfa til framtíðar og nýrra tækifæra 💙
24/06/2026
Þeystareykir here we come! 👏
Frá upphafi hefur framleiðsla GeoSilica Iceland verið staðsett á Hellisheiði, en nú eru spennandi breytingar framundan. Unnið er að uppbyggingu nýs húsnæðis fyrirtækisins á Þeystareykjum, en fyrr á árinu gerði GeoSilica samning við Landsvirkjun um leigu á fjölnýtingarhúsnæði, afhendingu auðlindastrauma og samstarf til næstu ára. Framkvæmdir eru nú þegar hafnar og stefnt er að því að nýja aðstaðan verði tilbúin í lok júní. Þetta samstarf og flutningsferli markar stór tímamót í sögu GeoSilica og því langaði okkur að leyfa ykkur að fylgjast með ferðalaginu og þeim spennandi skrefum sem framundan eru 🥳
Sífellt fleiri fleiri kjósa að taka inn vítamín og / eða fæðubót í vökvaformi - Í stað þess að taka stórar töflur eða hylki sem að líkaminn þarf að byrja á að brjóta niður færðu kísilsteinefnin frá GeoSilica í fljótandi formi sem auðvelt er að bæta inn í daglega rútínu 💧
Finndu þína vöru á www.geosilica.is
17/06/2026
Gleðilegan 17. júní 🇮🇸
Við hjá GeoSilica erum stolt af íslenskum uppruna okkar og þeim einstöku náttúruauðlindum sem gera vörurnar okkar mögulegar.
Við vonum að þið njótið dagsins, hvort sem hann er í góðum félagsskap, út í náttúrunni eða með íslenska fánann á lofti 💙
15/06/2026
Fréttir frá GeoSilica! 🌱
Í samstarfi við ítalska landbúnaðarrannsóknarfyrirtækið Demetra Italia srl hefur GeoSilica tekið þátt í tilraunum sem kanna hvernig nanókísill úr jarðvarma getur stutt við ræktun tómata, salats, kívíávaxta og vínberja.
Þetta er frábært dæmi um hvernig nýsköpun og sjálfbær nýting auðlinda geta skapað verðmæti úr því sem áður var talið falla til sem aukaafurð.
Á myndinni má sjá samstarfsaðila verkefnisins sem að ber heitið REGEOSS (Recovery of Geothermal Silica for Sustainable Multi-Productions)
Á dögunum var birt grein um verkefnið, sjá hlekk í athugasemdum: 👇
RENEW inniheldur kísil, sink og kopar og er samkvæmst viðskiptavinum okkar; vinsælust fyrir að draga úr hárlosi og þykkja hárið 🤩
Hefur þú prófað RENEW?
www.geosilica.is
11/06/2026
Staðreynd sem ekki margir vita 👇
Allar okkar vörur eru í fljótandi formi sem að gerir þær auðveldar í notkun 💧og þar sem að kísillinn er þegar uppleystur í vatni, þarf líkaminn ekki að byrja á því að brjóta niður töflu eða hylki - heldur tekur vöruna beint upp og þar af leiðandi betri nýting.
RENEW inniheldur náttúrulegan kísil ásamt sinki og kopar sem styðja við eðlilegt viðhald hárs, húðar og nagla ✨
Við mælum með áskriftarleiðinni fyrir þá sem að vilja hámarka árangur með reglulegri notkun - 15% afsláttur og frí sending.
www.geosilica.is
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Keflavík
Opening Hours
| Monday | 09:00 - 16:00 |
| Tuesday | 09:00 - 16:00 |
| Wednesday | 09:00 - 16:00 |
| Thursday | 09:00 - 16:00 |
| Friday | 09:00 - 16:00 |
