Akashicheilun
Akashic skrár og heilun
Hér koma niðurstöður andlegu táknanna sem ég setti inn í gær
🌟🌟🌟 🌟
NR 1, DRAUMAFANGARI:
Samkvæmt gömlum hefðum frumbyggja Ameríku átti draumafangarinn að sía burt neikvæða orku eða „vonda“ drauma; hann virkaði sem einskonar vörn. Kannski hefur þér að undanförnu fundist orkan þín vera stífluð, heft eða innilokuð; mögulega gæti þér líka fundist þú vera undir „árás“ neikvæðra áhrifa/afla. Draumafangarinn getur þannig hjálpað þér að vernda sjálfa/n þig, ýmist með því að fjarlægja þig frá þeim eða því sem gefa þér ekki næringu eða góða tilfinningu, - eða með því að binda enda á tengsl og önnur bönd sem gera þér ekki lengur gott. Að setja heilbrigð mörk snýst um að auka eigin virðingu og kærleika til sjálfrar/sjálfs þín – og það er ekki eigingirni. Að lifa lífinu á þínum eigin forsendum er ekki rangt, það snýst um að vera trú/r þinni sál, þinni vegferð og þinni eigin lífsáætlun. Þegar lexíunni er lokið heldurðu áfram; umfaðmaðu tækifærin og fjarlægðu þig frá því sem gerir þér ekki gott. Sál þín og andi vita nefnilega alltaf best.
🌟🌟🌟🌟
NR 2, FIÐRILDI:
Fiðrildið hefur alltaf verið öflugt tákn um umbreytingu, hamskipti og yfirfærslu yfir í eitthvað nýtt – hvaða annað dýr getur að því marki umbreytt sjálfri sér í eitthvað jafn fallegt og ljómandi vængjaða veru sem gettur flogið um í sumarblænum? Tíminn er kominn til að hækka tíðnina þína, umfaðma breytingarnar og fljóta með þeim í stað þess að vinna gegn þeim. Merkin hafa ábyggilega verið mörg um að þú þurfir breytingu, t.d. gætir þú hafa upplifað „allt í einu“ þörf fyrir að flytja, breyta mataræði og/eða lífsstíl, gætir hafa orðið leið/ur á vinnunni eða „vinunum“; þetta er aðferð alheimsins til að segja þér að þú sért sért búin/n með þann kafla í lífi þínu sem þú ert í núna og sért fullnuma. Slepptu takinu á því sem var og skapaðu ný munstur. Þegar eitthvað tæmist og verður meira lýjandi og leiðinlegt en gleðiríkt og skemmtilegt, þá er það merki um að þú sért tilbúin/n að halda áfram – leyfðu að þú verðir leidd/ur í rétta átt, hversu óhugsandi, óvænt eða undarlegt sem það kann að virðast. Fljúgðu frjáls og hátt – eins og fiðrildi í kvöldsólinni, að sumri til.
🌟🌟🌟🌟
NR 3, LÍFSINS TRÉ:
Fornt, kært og elskað tákn í mörgum trúarbrögðum og lífsspeki. Í grunninn vísar lífsins tré til rótanna sem eru festar í fortíðinni, stofnsins sem er nútíð þín og greinanna sem eru framtíð þín. Lífsins tré táknar þá eilífu hringrás endurnýjunar og endurfæðingar sem við göngum öll í gegnum; við fæðumst, lifum og lærum, vöxum og döfnum, við deyjum og snúum aftur til náttúrunnar til að koma aftur til lífsins. Tréð er lærimeistari þinn í andlegum vexti og kærleika, sjálfsþekkingu og skilningi. Vakning og nýtt ferðalag er á leiðinni til þín, kannski birtist það í gegnum námskeið eða þróun, nýja sýn eða innsæi – jafnvel nýja lífsstefnu. Það mikilvægasta sem þú gerir núna er að umfaðma þetta allt og leyfa sjálfri/sjálfum þér að vakna upp til nýrrar tilveru. Það gamla á að að fá að fara út og það nýja á að fá að koma inn; tæmdu hugann og leyfðu sálinni og innsæinu að taka yfir. Því minni mótspyrnu sem þú veitir, þeim mun auðveldara verður það. Lifðu á hverjum degi í andlegum kærleika og skilningi. Í Wicca-fræðum þýðir þetta líka: „Svo sem það er að ofan, þá er það einnig að neðan; svo sem það er hið innra, svo er það líka hið ytra; svo sem það er í alheiminum, svo er það líka með sálina“.
🌟🌟🌟🌟
NR 4, HAMSA – HÖND FATIMU:
Orðið hamsa þýðir fimm. Táknið stendur fyrir vernd og fingurnir fimm senda frá sér kærleksríkar blessanir sem hver og einn táknar trú, von, styrk, frið og framgang. Kannski valdirðu þetta tákn í dag vegna þess að þig langar í líf sem er fyllra af meiri friði, jafnvægi og samhljómi, eða til að færa þér von um betri framtíð. Mikilvægasta skrefið til að ná þessu tekurðu núna strax í dag - með því að anda djúpt og rólega, leysa upp fortíðina og sleppa takinu á því sem hefur verið sársaukafullt. Sá/sú sem þú ert í dag er ekki sá/sú sem þú varst í gær og þú þarft ekki lengur að dragnast með þennan farangur fortíðar. Þegar við veljum frið þurfum við oft að ganga fyrst í gegnum hreinsunartímabil svo sál okkar og andi komist aftur í jafnvægi við hið guðdómlega – ekki gleyma því. Og þá fer allt að losna. Því meira sem þú lifir í samræmi við þína eigin sannfæringu, þeim mun sterkari verðurðu. Við verðum það sem við veljum að vera – og við höfum frelsi til að velja.
🌟🌟🌟🌟
NR 5, TENINGUR METATRONS:
Ef þú hefur verið að bíða eftir merki um hvað sé framundan, þá hefurðu núna valið einn öflugasta vegvísi sem þú gætir fengið – fyrir mörgum er þetta sterkt tákn hugleiðslu, heilunar, andlegrar iðkunar og dulspeki. Sumir sjá þennan tening fyrir sér í hugleiðslu til að ná æðri vitund eða tengingu við sitt æðra sjálf; sagt er að teningurinn hækki tíðni okkar og titring gagnvart æðri kröftum/öflum. Ef þú valdir þetta tákn þá liggur leið þín inn í dýpri heilun, þróun, miðlun, tengingar og sterka og innilega dýpt í þínu andlega lífi. Tenging þín er við engla, náttúruöfl, leiðbeinendur og hjálparverur er til staðar – tíminn er kominn til að leita dýpra.
🌟🌟🌟🌟
04/06/2026
Uppfært: Það er kominn inn færsla með túlkunum. Þá færslu má finna inn á síðunni minni.
🌟💛🌟💛🌟
Hæ hó kæru vinir.
Sumarið er komið, tíminn er núna til að gefa þér innsýn í hvað sál þín og andi vilja segja þér. Hvert liggur leiðin áfram, hverju á ég að sleppa takinu á, hver er ég og hvaðan kem ég?
Lokaðu augunum í eitt lítið augnablik og tæmdu hugann, veldu svo eitt af þessum kraftmiklu táknum.
Reyndu að velja aðeins eina mynd til að fá sem nákvæmustu og réttust skilaboðin.
Ég set inn færslu á morgun með túlkunum á öllum myndum.
Loksins!
Loksins er handbókin mín um Akashic skrárnar tilbúin og útprentuð. 351 bls. af hágæða konfekti fyrir mig, þig og alla aðra.
Kærar þakkir til þín, Þorbjörg Valdimarsdóttir, sem last yfir bókina í miðjum sauðburði - innsýn þín var mikilvægt atriði og aðstoð þín dýrmæt.
Þá er bara að galdra saman helgarnámskeið sem mig langar að kynna fyrir öllum á Heimsljósamessunni í september.
Það eina sem breytist í sambandi við handbókina er að það verða nokkrar bls í lit.
Ég ákvað að mín bók þyrfti þess ekki.
17/05/2026
Í tilefni þess að í dag er þjóðhátíðardagur Norðmanna - 17. maí - hef ég notað norskan Oracle stokk e. Annette Laurenze Sunde. Hún á og rekur Oracle's of Norway (www.orakelkort.no)
Þessu stokkur heitir: Hverdags Orakler
🇧🇻🇧🇻🇧🇻
Lokaðu augunum og kyrraðu hugann.
Þegar þú ert tillbúin/n skaltu velja þér x1 spil.
Síðan skaltu senda mér skilaboð til að fá
bæði mynd af þínu spili og svar.
🇧🇻🇧🇻🇧🇻
Mundu:
Ekki skrifa í komment, sendu mér skilaboð
🔆🔆🔆🔆
🇧🇻🇧🇻🇧🇻
🔆🔆🔆🔆
I anledning av at det i dag er Norges nasjonaldag – 17. mai – har jeg brukt en norsk orakelstokk av Annette Laurenze Sunde. Hun eier og driver Oracle's of Norway (www.orakelkort.no)
Denne stokken heter: Hverdags Orakler
🇳🇴🇳🇴🇳🇴
Lukk øynene og still sinnet.
Når du er klar, skal du velge ett kort.
Deretter sender du meg en melding for å få
både bilde av kortet ditt og svaret.
🇳🇴🇳🇴🇳🇴
Husk:
Ikke skriv i kommentarfeltet – send meg en melding
🇳🇴🇳🇴🇳🇴
08/05/2026
The Munay Ki Rites.
Hvað er það? Ég lærði það fyrir nokkrum árum eingöngu fyrir mig sjálfa, en ég nota það samt sem áður oft í bland við aðrar hluta í heilun. Ég man vel að margt gréri og heilaðist við að ganga í gegnum þessa vinnu og verkefni. Meira að segja tóku nokkrir einstaklingar eftir þeim breytingum. 💛
Ákvað að láta gervigreindina búa til laufléttar upplýsingar til að deila með ykkur 💛
20/04/2026
Skilaboð dagsins til þín frá englum,
formæður þínum og forfeðrum.
Lokaðu augunum og kyrraðu hugann.
Þegar þú ert tillbúin/n skaltu velja þér x1 spil.
Síðan skaltu senda mér skilaboð til að fá
bæði mynd af þínu spili og svar.
Mundu:
Ekki skrifa í komment, sendu mér skilaboð
🔅🔆🔅🔆🔅
Þetta er Oracle stokkurinn: Angel and ancestors oracle cards e. Kyle Gray
Handbókin mín á íslensku er 99% tilbúin!!!
Bara laufléttur yfirlestur og uppsetning eftir fyrir efnisyfirlit.
Ég er að springa úr hamingju
🥰
Spjallað á Tik tok.
Partur 3 af 3 þar sem ég tala lauflétt um Akashic skrárnar og mína vinnu tengda þeim.
Spjallað á Tik tok.
Partur 2 af 3 þar sem ég tala lauflétt um Akashic skrárnar og mína vinnu tengda þeim.
Spjallað á Tik tok.
Partur 1 af 3 þar sem ég tala lauflétt um Akashic skrárnar og mína vinnu tengda þeim.
Klikk her for å få din Sponsede Oppføring.
