Nuddhofið - Nudd.is
Lítil nuddstofa sem sérhæfir sig í klassísku og djúpvöðvanuddi með Taílensku ívafi. Við erum staðsett í Suðurbæjarlaug og Hress heilsurækt.
16/02/2026
Nuddhofið starfar á tveimur stöðum. Í Suðurbæjarlaug er nuddstofan staðsett inni í sundlauginni þar sem viðskiptavinir fá frían aðgang að búningsaðstöðu, sturtum, gufu, sundlaug og heitum pottum samhliða nuddheimsókn sinni. Í Hress heilsurækt er nuddstofan hluti af rólegu og hlýlegu umhverfi þar sem gestir hafa frían aðgang að búningsaðstöðu, sturtum, gufu og heilsurækt. Báðar staðsetningar bjóða upp á heildstæða upplifun sem sameinar fagmennsku, umhyggju og raunverulega vellíðan.
Nánari upplýsingar og tímapantanir eru á
Nuddhofið Taílenskt olíunudd hjá reyndum nuddurum. Tveir staðir í Hafnarfirði: Suðurbæjarlaug og HRESS. Einföld netbókun.
18/01/2026
Við kynnum Jantakarn 💙 — taílenskan nuddkennara með 20+ ára reynslu.
Jantakarn er frá Taílandi og var ein af kennurum Sudaphon og Suphansa í Wat Pho, Salaya. Hún hefur unnið við nudd í yfir 20 ár, bæði sem nuddari og kennari.
Hún er nú staðsett hjá okkur í Hress og við viljum endilega að þú prófir tímann hjá henni — jafnvel bara einu sinni.
Það er skiljanlegt að það sé erfitt að velja nuddara og margir vilja halda sig við Sudaphon og Suphansa. En ef þú gefur Jantakarn tækifæri, þá get ég lofað að þú verður ekki fyrir vonbrigðum 😉
Einnig mun hún bjóða upp á Slökunarnudd og Nuddkennslu fyrir pör — nýja þjónustu sem hefur ekki verið í boði hér á landi áður.
Noona | Bókaðu tíma í allt, núna. Bókaðu þjónustu eða borð hjá uppáhalds fyrirtækjunum þínum, hvenær sem er og hvar sem er inni á noona.is eða Noona appinu.
Nú er góður tími til að panta gjafakort í nudd fyrir jólin 🎄gjafakort.nudd.is
04/12/2025
Tvær nuddkonur á leiðinni til Íslands. Jantakarn mun sjá um Nuddhofið í Hress og hún er búinn að vera vinna sem nuddkennari Wat Pho í 20+ ár. Við hlökkum mikið til að fá hana til liðs við okkur. Svo kemur hún Freyja til okkar milli jóla og Nýárs sem gesta nuddari. Hún er búsett í danmörku og er menntuð sem sjúkranuddari og hefur líka tekið Taí nuddið hjá Wat Pho ☺️ kannski get ég platað hana til okkar fulltime.
20/10/2025
Jæja, þá var listamaðurinn okkar að klára myndina af Suðurbæjarlaug. Rosalega flott mynd ❤️
Wetchayan Unhasuwan Studio
16/10/2025
Listamaðurinn okkar í Taílandi var að klára þessa mynd af staðsetningunni okkar í Hress. Við munum nota þessa mynd til að lýsa staðsetningunni okkar í Hress 😊
Nú bíðum við spennt eftir myndinni af Suðurbæjarlaug 🥰
Wetchayan Unhasuwan Studio
20/05/2025
Hér koma nokkra myndir í viðbót af nuddherberginu okkar í Hress (dalshrauni 11). Við fengum í dag loksins málverkið úr innrömmun sem var málað fyrir okkur í Taílandi 🥰
01/05/2025
Sudaphon er komin tilbaka úr fríinu og byrjar að vinna aftur á laugardaginn. Hún verður á nuddstofunni í Hress á meðan við byggjum hana upp, eða þar til nýr nuddari gengur til liðs við okkur. Þeir sem þurfa djúpvöðvanudd þurfa að koma í heimsókn í Hress. Best er að finna bókunar dagatölin í gegnum vefsíðuna okkar -
Nuddhofið Taílenskt olíunudd hjá reyndum nuddurum. Tveir staðir í Hafnarfirði: Suðurbæjarlaug og HRESS. Einföld netbókun.
Þá er Sudaphon komin í frí og hún kemur aftur til starfa 3. Maí. Suphansa passar stofuna í Suðurbæjarlaug á meðan. Stofan í Hress verður lokuð í Apríl. Síminn okkar 888-3090 verður líka lokaður í Apríl. Best er að ná í okkur með því að senda línu á [email protected]
10/03/2025
Nuddhofið 😊
Jæja, eins og sumir hafa kannski tekið eftir þá er ég búinn að vera hringla í vörumerkingunni okkar í smá tíma núna. Enn nú er búið að taka endalega ákvörðun og mun litla stofan okkar heita "Nuddhofið". Því miður get ég ekki breytt því að svo stundu hér á Facebook vegna þess að það er of stutt síðan ég gerði það síðast. Enn það mun breytast einhverntímann í Maí. Við notum áfram lénið Nudd.is sem okkar aðal lén, enn við höfum einnig skrásett léninn Nuddhofid.is og Nuddhofið .is
Nuddhofið Taílenskt olíunudd hjá reyndum nuddurum. Tveir staðir í Hafnarfirði: Suðurbæjarlaug og HRESS. Einföld netbókun.
21/02/2025
Velkominn á nýju stofunna okkar í Hress. Hafið ekki áhyggjur við höldum einnig áfram í Suðurbæjarlaug 😊
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Telephone
Website
Address
Hafnarfjörður
Opening Hours
| Monday | 07:00 - 21:00 |
| Tuesday | 07:00 - 21:00 |
| Wednesday | 07:00 - 21:00 |
| Thursday | 07:00 - 21:00 |
| Friday | 07:00 - 19:00 |
| Saturday | 08:30 - 17:00 |
| Sunday | 08:30 - 16:00 |
