Sigga nuddari
Heilsunuddari heilun og höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð
22/08/2022
Hugur minn, líkt og annarra í dag, er hjá öllum þeim fjölda sem fer nú í gegnum erfiða tíma vegna þeirra hörmulegu atburða sem áttu sér stað á Blönduósi í morgunsárið.
Fyrir okkur sem stöndum til hliðar og viljum leggja eitthvað af mörkum getur verið gott að vera gjöful á kærleika og lána von þegar vonleysið og sorgin taka yfir. Að vera vonarberi á erfiðum tíma þýðir að við erum til staðar fyrir þann sem er á vonarvöl og fólk skynjar mátt kærleikans og finnur hlýjuna þrátt fyrir að okkur finnist erfitt að geta ekki lagt meira af mörkum. Við viðurkennum vanmátt viðkomandi á sama tíma og við gefum von um betri tíð sem getur í besta falli gert þessa baráttu aðeins þolanlegri, gönguna á móts við nýtt líf þróttmeiri og viljann sterkari.
Gunnar Hersveinn orðar þetta svo fallega: Þau sem bera von fyrir aðra og eru vonarberar samfélags, eru einnig fuglarnir sem syngja í dimmunni fyrir dögun.
Sendi kærleika og ljós
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Telephone
Website
Address
Suðurgata 41
Hafnarfjörður
220
