OsteoRehab.is

OsteoRehab.is

Share

Osteopatía og sjúkraþjálfun.
- Sameinuð hugmyndafræði til að ná lengra gegn verkjum og endurhæfingum

03/12/2025

Osteópatískt Sport Nudd – 45 mín (Andri Osteópati)

Meðferð án greiningar.
Hentar þeim sem vilja koma beint í markvissa líkamsmeðferð án viðtals og athuganar og þekkir einkenni vel.

afhverju að velja þessa meðferð?
Osteópatískt sport nudd er djúp og nákvæm mjúkvefjameðferð sem vinnur á spennu, triggerpunktum, stirðleika og vöðvabólgu. Ég beiti handvirkri tækni úr fjögurra ára námi í vöðva- og mjúkvefjalosun sem byggist því að leysa eins mikið af stirðleika eins og hægt er.

• 45 mín áhrifarík meðferð
• Engin greining – bara meðferð
• Frábært fyrir háls-, herða-, bak- og mjaðmaspennu

Fullkomið fyrir einstaklinga sem vilja fljótlega, faglega og markvissa lausn.
Ef upp hafa komið áverkar frá slysum sem eru nýlega eða eldri, sjúkdómar og annað þá er nauðsynlegt að láta vita.
Hlakka til að sjá ykkur og ef það kom upp spurningar endilega hafið samband hér á facebook eða í gegnum bókunar síðu okkar hér að neðan.

Bókið tíma hér að neðan

https://noona.app/osteorehab/book

09/11/2025

Hvað er líkt við TOS,sinaskeiðsbólgu og brjósklosi í hálsi ?

Mörg einkenni eins og dofi, náladofi eða verkur út í handlegg geta verið mjög lík hvort öðru en orsökin fara eftir því hvar þrýstingurinn á taugar út í handlegg byrja.

TOS – Thoracic Outlet Syndrome
Þrýstingur á taugar og æðar milli vöðva í hálsi og viðbeins.
Algengt hjá fólki með spennu í hálsi og öxlum.

Einkenni og orsök: verkur og dofi leyðir út í hendi sem versnar þegar henndinni er lyft eða notuð yfir höfuð.

Carpal Tunnel Syndrome (sinnaskeiðsbólga) – Úlnliðsgöng /-
Klemming á miðtaug í úlnlið.
Oft vegna endurtekinnar handavinnu eða tölvuvinnu.

Einkenni: dofi og náladofi í þumli, vísifingri og löngutöng, sérstaklega á nóttunni.

Brjósklos í hálsi
Brjósk milli hryggjarliða þrýstir á taugarót.
Getur komið af álagi, áverka eða slitbreytingum.

Einkenni: verkur, dofi eða máttleysi sem geislar niður í öxl, handlegg og oft meira öðrum megin.

Í stuttu máli

TOS: efst, við öxl og viðbein

Carpal Tunnel: neðst, í úlnlið

Brjósklos: í hálsi

það er margt fleyra sem getur valdið slíkum einkenum en vegna þess að einkenni eru svo lík og oft erfitt fyrir einstakling að skilgreina þá skiftir máli að fá rétta greiningu sem fyrst því flest sem veldur langvarandi þrengslum á tuagum og æðum getur haft langvarandi heilsufarsáhrif.

Við höfum okkar aðferðir til þess að skilgreina þessi vandarmál og auk þess erum við með aðferðir til þess að endurhæfa og minnka einkenni. Hinsvegar mælum við alltaf með að fólk fari til læknis til að hafa örugga greiningu áður en lengra er haldið.

Rétt líkamsstaða, hreyfing, styrkur í hálsi og öxl hjálpar til við að fyrirbyggja flest þessara einkenna ef það er grippið inní snemma.

01/10/2025
21/09/2025

💡 „Hvað gerir osteópatíu sérstaka? (English below)

👉 Við meðhöndlum ekki bara staðinn sem er í verkjum, heldur finnum út hvað veldur því að þessir staðir eru undir verkjum til að byrja með.

👉 Við vinnum með líkamann sem eina heild ef á við – því allt tengist og þú kannski spyrð hvað þýðir það?

✨ „Dæmi: Ef þú færð skyndilegan mjóbaksverk án slysa eða taugavandamála, þá fellur það oft undir það sem við köllum óskilgreindur mjóbaksverkur. Nafnið getur hljómað sakleysislegt, en verkurinn er það alls ekki – hann getur verið svo sterkur að erfitt er að ganga, vinna eða sofa. Þess vegna er mikilvægt að taka hann alvarlega, svo lífið komist aftur í eðlilegt horf.

Líkaminn vinnur sem ein heild – mjóbak, efri bak, mjaðmir og rassvöðvar er allt samtengd með bindivefum og hreyfi "keðju". Ef eitt svæði tekur of mikið á sig, til dæmis neðra mjóbakið í stað þess að dreifa álaginu með mjöðmum og efra baki, þá myndast smám saman spennupunktar sem geta á endanum valdið álagsmeiðslum í mjóbaki, rassvöðvum eða efra baki.
Kim B, Yim J. Core Stability and Hip Exercise (2020)

Með osteópatíu hjálpum við líkamanum að finna aftur jafnvægi og dreifa álaginu á eðlilegan hátt

👉 Með mjúkum og öruggum aðferðum hjálpum við líkamanum að styrkjast og mýkjast í kringum spennusvæði sem upp hafa komið álagsmeiðsli og verkjamynstur.

English here!

👉 We work with the body as a whole where applicable – because everything is connected and you might be asking what that means?

✨ “Example: If you suddenly get lower back pain without an accident or nerve problem, it often falls under what we call unspecified low back pain. The name may sound innocent, but the pain is not at all – it can be so severe that it is difficult to walk, work or sleep. That’s why it is important to take it seriously, so that life can get back to normal.

The body works as a whole – the lower back, upper back, hips and buttocks are all interconnected by connective tissue and a “chain” of movement. If one area takes on too much, for example the lower back instead of spreading the load with the hips and upper back, then gradually tension points form that can eventually cause stress injuries in the lower back, gluteal region or upper back.
Kim B, Yim J. Core Stability and Hip Exercise (2020)

With osteopathy we help the body find balance again and distribute the load in a normal way

14/09/2025

Góðan daginn,
Þar sem við vinnum hér samhliða öðrum störfum viljum við uppfæra opnunartímana hjá okkur hér að neðan svo þetta sé allt á hreinu.

Til þess að sjá hvaða tímar eru lausir, verðskrá og hvaða þjónustur eru í boði bendum við á vefslóðina:
https://noona.is/osteorehab

Hlökkum til að sjá ykkur og ef það eru einhverjar spurningar varðandi meðferðina þá endilega sendið á okkur.

English:
We are working here at the clinic alongside other jobs so on the photo below you can see which opening hours we have and we kindly remind people that we take bookings on noona: https://noona.is/osteorehab

Looking forward seeing you and if you have any questions please send us a line here on facebook or on our email: [email protected]

OsteoRehab 21/07/2025

Höfum komið okkur aftur á stað eftir sumarfrí og auk þess fengið glænýjan meðferðarbekk til þess að það fari betur um ykkur sem hafa áður verið hjá okkur.
Okkur hlakkar til að fá ykkur og verið í bandi ef þið hafið vandamál sem þið eruð ekki viss um hvort við getum hjálpað með eða ekki.
Við minnum á vefsíðu okkar fyrir bókanir

OsteoRehab Osteorehab sameinar kraft osteópatíu og sjúkraþjálfunar til að bjóða heildræna lausn fyrir þá sem leita að bættri heilsu og vellíðan. Með okkar sérfræði að leiðarljósi miðum við að aðstoða og endurheimta líkamsstarfsemi. Eftir tveggja ára samstarf í Svíþjóð hefur sa...

03/06/2025

Erum farinn í sumarfrí til 3.Júlí og þökkum ykkur fyrir skilninginn.
Verðum í sambandi við fasta kúnna yfir þann tíma ef vandamál koma upp. Alltaf hægt að senda okkur email á [email protected] með fyrirspurnir yfir þann tíma líka.
Eigið gott sumar!

10/05/2025

Góðan daginn!
Höfum fengið þó nokkra einstaklinga til okkar með margskonar vandarmál tengt golf spilun og þá sérstaklega það álag sem kemur þegar kroppurinn fer af stað eftir langan vetur.
Viljum benda á að það er sjaldan góð hugmynd að hunsa þetta ástand og býtta á jaxlinn í 18 hollur bara til þess að vandarmálið breytist til hins verra.

Algengir staðir sem verkir koma upp:
- Hnén
- Úlnliður
- Axlir
- Olnbogi (gólf olnbogi)
- Mjóbakið
- Mjaðmir
- Hælspori
- Hálsverkir
Eins og þið sjáið þá eru þetta margir staðir sem geta verið undir álagi!

Ef þú kannasti við eitthvað af eftirfarandi þá erum við mögulega með lausn við því.
Ekki gleyma að teygja og hitta upp þá staði sem verða fyrir verkjum áður en er lagt á stað.
Ef þú kannast við kinetic teyp meðferðir þá bjóðum við líka uppá það ásamt því kennum við fólki að halda við þessum teypum sjálf til þess að hindra líkaman frá því að versna á meðan þið takið einn eða tvo hringi.

Ef það eru einhverjar spurningar endilega verið í bandi og verið hjartanlega velkominn til okkar.
https://noona.is/osteorehab/book

25/04/2025

Gleðilegt sumar!
Við vonum að þetta sumar verði sólríkt og gefi góð tækifæri til þess að slaka á og koma inn hreyfingu ☀️ .
Ekki gleyma að hugsa um heilsuna og ef það er einhvað sem hindrar ykkur að komast á hreyfingu sem tengist liðum- vöðvum og verkjum þá erum við hér til þess að gera okkar allra besta til að hjálpa.
Verið svo innilega velkominn að hafa samband með spurningar eða bóka tíma.

30/03/2025

Slitgigt er algengt vandamál sem stundum er hægt að halda í skefjum og hægt er að minnka þá verki og breytingar sem koma út frá slitgigt í hné.
Við sumar aðstæður geta verkir orðið svo slæmir að æfingar eitt og sér er nánast ómögulegt og því erfitt að ná framförum. Osteópatía getur með vissum meðferðum minnkað bólgur,krampa og verki í kringum hné til þess að leyfa meiri hreyfingu í hné lið og út frá því geta æfingar náð betri tökum á verkjum.
Osteópatía er því kostur sem hægt er að velja.

Want your business to be the top-listed Beauty Salon in Kópavogur?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Category

Address


Hafnarbraut 9a
Kópavogur
200