YogaZonen
YogaZonen - Svæða- og viðbragðsmeðferð, oft kölluð svæðanudd er nudd á iljum sem virkar fyrir allan líkamann, og er mjög góð leið til heilsubótar.
Svæðanudd veitir mjög góða slökun, en eykur jafnframt orkuflæði líkamans. Svæðanudd byggir á að viðbragðspunktar og svæði á fótum eigi sér samsvörun annars staðar í líkamanum. Þegar þrýst er á þessi svæði með ákveðinni aðferð hefur það áhrif á starfsemi likamans.
17/06/2026
Mæli svo sannarlega með Svövu Brooks og TRE aðferðinni 😊
Ég veit hvenær nóg er nóg – en ég þarf að stoppa til að finna það.
Taugakerfið er hannað til að leita, gera og sækjast eftir meiru. Það er ekki galli – það eru lífsbjargandi viðbrögð. En „nóg“ finnst aldrei í huganum. Það býr ekki þar.
Það kemur þegar ég stöðva. Þegar ég tek pásu. Þegar ég hlusta.
Þetta er það sem mjaðmarvöðvinn (psoas) – einn af dýpstu vöðvum líkamans – reynir að segja okkur. Hann geymir streitu okkar, varnir okkar, hið ósagða „ekki alveg strax“. Þegar við tökum aldrei pásu fær hann aldrei skilaboðin um að það sé óhætt að sleppa takinu.
Fjöltaugakenningin (Polyvagal Theory) minnir okkur á að öryggi er ekki hugsun. Það er upplifuð tilfinning. Og taugakerfið getur ekki fundið hvíld með viljastyrknum einum saman – það þarf augnablik kyrrðar til að átta sig á því að ógnin er liðin hjá, álagið er búið.
Þannig að æfingin er einföld, en ekki auðveld: taktu pásu.
Prófaðu eitt af þessu núna:
🖥️ Ýttu þér frá tölvunni. Horfðu út um gluggann eða lokaðu augunum í smástund.
📱 Leggðu símann frá þér. Taktu þér mínútu til að átta þig á umhverfinu – taktu eftir litum, áferð, hlutum, náttúru.
🌬️ Láttu axlirnar síga. Taktu eftir andardrættinum og leyfðu honum að hægja á sér.
Bara eina mínútu. Vertu forvitin/n – hvað breytist?
Þetta eru ekki pásur frá vinnunni. Þetta er vinnan. Lítil augnablik kyrrðar eru leiðin sem taugakerfið lærir að það sé óhætt – og öryggi er þar sem lækning hefst.
Hvar í deginum þínum getur þú skapað eina litla pásu í dag?
Ef þig langar að hjálpa psoas vöðvum þínum að sleppa spennunni, læra að hlusta á líkamann, hafðu samband. Ný TRE námskeið byrja í lok júní í sal og á netinu.
20/04/2026
Svæðanudd í Mosfellsbæ 🙂
Svæðanudd á fótum er gott fyrir heilsuna, því það virkjar líkamann til sjálfshjálpar.
Taugaendar sem liggja niður í fætur eru nuddaðir á ákveðinn hátt sem hefur áhrif á líffæri og vöðva allstaðar í líkamanum.
Þetta örvar allt orkuflæði og heilunarmátt líkamans, losar um spennu og vinnur gegn ójafnvægi og kvillum.
Svæðanudd getur m.a. hjálpað við:
• Stoðkerfisvandamálum, svo sem bakverkjum og vöðvabólgu
• Maga og meltingartruflunum
• Höfuðverk og mígreni
• Andlegu ójafnvægi og stressi
• Truflunum í hormónakerfi
• Ofnæmi og astma
• Exemi og húðvandamálum
Tímapantanir hér í gegn um síðuna í einkaskilaboðum, eða í síma 865-1607
Ásgerður Jónasdóttir Svæðanuddari / Jógakennari / Jógadanskennari.
18/03/2026
Bakverkir? Fótaþreyta? Vöðvabólga?
Svæðanudd á fótum í Mosó 🙂
Nuddið er meðal annars gagnlegt við vöðvaverkjum. Unnið er í gegn um taugaenda í fótum sem hafa áhrif á starfsemi líkamans og hjálpa honum að hjálpa sér sjálfum.
Orku- og blóðflæði eykst, það losnar um spennu og hnúta, og verkir láta smá saman undan.
Tímapantanir í einkaskilaboðum hér í gegn um síðuna, eða í síma 865 1607
Ásgerður Jónasdóttir Svæðanuddari, Jógakennari, Jógadanskennari.
02/01/2026
Svæðanudd á fótum í Mosó ☺️
Gleðilegt nýjár kæra fólk, og verið velkomin í svæðanuddið hjá mér eftir sem áður 🩷
Svæðanudd vinnur í gegn um taugaenda á fótum, og ýtir við vöðvum og líffærum og starfsemi þeirra þannig að þau verða virkari, þar sem nuddið losar um stíflur og hömlur sem geta myndast í líkamanum af ýmsum ástæðum, svo sem álagi/stressi, sömu vinnustelllingum o.fl.
Nuddið eykur orkuflæði og vinnur vel á verkjum og kvillum, það getur þó tekið tíma þegar um langvarandi álag er að ræða.
Tíminn er klukkustund og kostar 12.000kr. Sum verkalýðsfélög greiða niður.
Tímapantanir í einkaskilaboðum hér í gegn um síðuna, eða í síma 865 1607
Ásgerður Jónasdóttir Svæðanuddari / Jógakennari / Jógadanskennari.
23/12/2025
Kæru vinir!
Sendi mínar bestu jóla og nýjárskveðjur til ykkar, með þökkum fyrir árið sem er að líða 😊
Hittumst heil 💜
Ásgerður svæðanuddari.
04/12/2025
Já, svæðanuddið alltaf gott 👌
Your nervous system loves reflexology more than you know ✨
Gentle pressure, slower breathing, calmer thoughts - it all adds up.
Here are a few ways reflexology helps bring you back to centre...
02/12/2025
Komdu í svæðanudd á aðventunni og slakaðu á inn í jólin 😊
Unnið er í gegn um taugaenda á fótum.
Svæðanudd lætur þér líða vel og hjálpar þér að viðhalda góðri heilsu.
Það virkjar innri kerfi líkamans til sjálfshjálpar, og vinnur á verkjum og ójafnvægi, bæði í stoðkerfi og innri líffærum.
Nuddið gefur góða slökun og reynist vel gegn stressi og depurð.
Einnig hægt að kaupa gjafabréf.
Tímapantanir í einkaskilaboðum hér í gegn um síðuna, eða í síma 865 1607
Ásgerður Jónasdóttir Svæðanuddari, Jógakennari, Jógadanskennari.
Er í Mosfellsbæ 🙂
30/11/2025
Vantar þig jólagjöf fyrir þann sem á allt? Eða fyrir þann sem sannarlega þarf á því að halda að hlúa að sjálfum sér?
Gjafabréf í svæðanudd á fótum er góð gjöf sem gleður 🙂
Tími hjá mér í svæðanuddi er klukkustund og kostar 12.000kr.
Nú á aðventunni býð ég gjafabréf á 10.000kr. afhent á staðnum (í Mosfellsbæ) eða hægt að senda í tölvupósti gegn greiðslu.
Í svæðanuddi er unnið með líkamann - stoðkerfi og innri líffæri í gegn um fætur. Snert er við taugaendum sem hafa áhrif á líkamsstarfsemina.
Meðferðin hjálpar okkur að ná jafnvægi og líða betur. Það losnar um innri spennu, hnúta og stíflur sem geta myndast vegna lítils blóðflæðis til ákveðinna svæða líkamans, oft vegna síendurtekinna vinnustellinga eða langvarandi álags.
Einnig getur nuddið haft áhrif á andlega líðan, svo sem kvíða, þunglyndi og stress.
Verið velkomin að hafa samband í einkaskilaboðum hér í gegn um síðuna, eða í síma 865 1607
Ásgerður Jónasdóttir Svæðanuddari / Jógakennari / Jógadanskennari, er í Mosfellsbæ.
29/10/2025
Bakverkir? Fótaþreyta? Vöðvabólga?
Svæðanudd á fótum er meðal annars gagnlegt við vöðvaverkjum. Unnið er í gegn um taugaenda í fótum sem hafa áhrif á starfsemi líkamans og hjálpa honum að hjálpa sér sjálfum.
Orku- og blóðflæði eykst, það losnar um spennu og hnúta, og verkir láta smá saman undan.
Tímapantanir í einkaskilaboðum hér í gegn um síðuna, eða í síma 865 1607
Ásgerður Jónasdóttir Svæðanuddari, Jógakennari, Jógadanskennari.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Skeljatangi 37 Uppi
Mosfellsbær
270
