zumbafitness.is

zumbafitness.is

Share

Zumba Fitness líkamsræktarkerfi er eitt það vinsælasta í heiminum í dag. Það byggir á ein

Zumba Fitness er eitt vinsælasta líkamsræktarkerfið í heiminum í dag. Það byggir á einföldum danssporum og mótandi og styrkjandi æfingum í takt við fjöruga og skemmtilega tónlist. Zumba kemur upphaflega frá Columbiu í Suður-Ameríku og byggir á dönsunum Salsa, Merengue, Cumbia og Reggaeton. Einnig notum við Sömbu, Flamico, Bellydance, Latin Pop, Cha Cha, Jive, Rokk, Pasó Double, Afró, Hip Hop Línudans, Kúrekadans og í raun allar danstegundir sem fyrir finnast í heiminum.

Cascada - Everytime We Touch (Official Video) 06/09/2024

Föstudagur og ég er alltaf með PARTÝ ZUMBA tíma á föstudögum kl. 17:00 í World Class í Breiðholti. Smá HOT tími en dásamlegur.
Það væri geggjað að sjá sem flesta.

Cascada - Everytime We Touch (Official Video) The Official video for Cascada "Everytime We Touch".Find loads more Classics in our Official Clubland Classix playlist! ➠ http://clb.land/classixFollow AATW:...

04/09/2024

Ég byrja á morgun með SLÖKUNARNÁMSKEIÐIÐ mitt sem ég kalla "SLÖKUN og HUGARRÓ". Við byrjum kl. 16:15 og erum í frábærum sal í World Class í Breiðholti. 4 vikur, kennt einu sinni í viku.
Skráning á https://www.worldclass.is/heilsuraekt/namskeid/

03/09/2024

Þriðjudagur í dag og ég minni á ZUMBAtímann minn í World Class í Breiðholti kl. 16:20. Næstu 4 vikurnar verðum við kl. 16:20-17:20.
Komið endilega og dansið með mér. Hlakka til að sjá sem flesta.
https://www.youtube.com/watch?v=Tja9S7lLvAg&list=RDMMTja9S7lLvAg&start_radio=1

31/08/2024

Ég verð með ZUMBAtímann í World Class Breiðholtinu í dag kl. 10:30. Ég er að leysa Kristínu Jónu af. Komið endilega og dansið með mér. Langt síðan ég hef dansað með ykkur. Sjáumst hress og kát eftir smá tíma. Get ekki beðið.

30/08/2024

FÖSTUDAGSZUMBAPARTÝ í dag kl. 17:00 í World Class í Breiðholti og við fáum Eva Björk Valdimarsdóttir Zumbakennara í heimsókn til okkar með nokkur lög. Hlakka til að dansa með ykkur. Allir velkomnir.

Grupo BIP - Simplemente Amigos ft. F***y Lu 27/08/2024

ZUMBA í dag kl. 17:15 í World Class í Breiðholti.
Nú er ég komin aftur til landsins og er með opinn ZUMBAtíma í World Class í Breiðholti í dag, þriðjudag kl. 17:15.
Komið endilega og dansið með mér. Það er geggjað gaman.
Allir velkomnir.
Hér er eitt af lögunum sem við tökum í dag. Þvílík gleðisprengja.

Grupo BIP - Simplemente Amigos ft. F***y Lu Music video for Simplemente Amigos ft F***y Lu performed by Grupo BIP.www.GrupoBIP.comhttp://instagram.com/grupoBIPhttps://itunes.apple.com/us/artist/bip/id6...

26/08/2024

Viltu læra að dansa ZUMBA - eða fara hægar og læra sporin vel!
------------------------------------------------------------------------
Við erum að byrja með ZUMBA GOLD tíma sem er Zumba fyrir byrjendur og/eða þá sem vilja fara hægar og læra sporin vel.
Tíminn byrjar kl. 16:15 í dag, mánudaginn 26. ágúst í World Class í Breiðholti, salur 3. Hlökkum til að sjá sem flesta. Allir velkomnir.

22/08/2024

Ertu að glíma við streitu, þreytu, of mikið álag eða jafnvel kulnun?
------------------------------------------------------------------------
Þá er þetta námskeiðið fyrir þig. Í heilan klukkutíma vinnum við í að koma huganum og líkamanum í algjöra ró. Hann endurnærist og við gefum "litlu viðgerðasveitinni" tíma til að vinna vinnuna sína í kroppnum okkar. Kennt á fimmtudögum kl. 16:15-17:15 í yndislegum sal í World Class í Breiðholti.
Skráning er á www.worldclass.is/namskeid

21/08/2024

ZUMBAtími fyrir byrjendur og þá sem vilja fara hægar. Köllum hann ZUMBA GOLD.
Byrjum mánudaginn 26. ágúst. Hann verður í World Class Breiðholti kl. 16:15 - 17:15 í sal 3. Drífðu þig endilega og komdu og dansaðu með okkur.

19/08/2024

Ertu að glíma við stirðleika og skerta hreyfigetu?
-------------------------------------------------------
Ég byrja með nýtt LOKAÐ 4 vikna liðleikanámskeið þriðjudaginn 3. september n.k. í World Class í Breiðholti. Tímarnir eru á þriðjudögum og fimmtudögum milli 17:30-18:30. Á námskeiðinu nota ég einfaldar en árangursríkar teygjur og liðleikaæfingar ásamt því að við losum bandvefinn og nuddum stífa og þreytta vöðva með sérstökum nuddboltum. Skráning á námskeiðið er á https://www.worldclass.is/heilsuraekt/namskeid/

07/03/2024

Við vorum að bæta við 2 VIKNA lokuðu liðleikanámskeiði. Síðasta námskeið fyrir Páska.
Kennt á þrið/fim kl. 17:30-18:30 í World Class í Breiðholti, sal 3 (heitur salur). Meiriháttar skemmtilegur hópur. Skráning á: www.worldclass.is/nynamskeid.is

29/02/2024

KOMDU og PRÓFAÐU?

Eru að glíma við þreytu, streitu eða bara alveg búin(n) á því?
------------------------------------------------------------------
Það eru nokkur pláss laus á nýja námskeiðinu mínu "SLÖKUN og HUGARRÓ" í dag kl. 16:15-17.15, þar sem ég vinn meðal annars með YOGA NIDRA til þess að vinda ofan af okkur, róa taugakerfið, ná góðri djúpslökun og fá smá hvíld frá áreiti daglegs lífs. Skráning á námskeiði er á www.worldclass.is/nynamskeid og svo má líka senda mér einkaskilaboð.

Want your business to be the top-listed Beauty Salon in Reykjavík?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Category

Address


Reykjavík